Fotbolti.net
07.02.24 - 20:22
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Ásgeir Frank leggur skóna á hilluna - Tekur við Hvíta riddaranum (Staðfest)

Ásgeir Frank leggur skóna á hilluna - Tekur við Hvíta riddaranum (Staðfest)
Canon

Mynd: Hvíti riddarinn

Ásgeir Frank Ásgeirsson hefur ákveðið að leggja skóna á hilluna en hann hefur verið ráðinn þjálfari Hvíta riddarans sem leikur í 3. deild í sumar.

Ásgeir Frank hefur verið leikmaður Aftureldingar undanfarin tvö ár. Hann fær aðstoð úr herbúðum Aftureldingar en Enes Cogic mun vera honum til halds og trausts en hann mun áfram vera aðstoðarmaður Magnúsar Más Einarssonar hjá Aftureldingu.

Ásgeir var lykilmaður í liði Aftureldingar undanfarin tvö tímabil en hann lék 48 leiki fyrir liðið.

Hinn 24 ára gamli Ísak Ólafsson verður einnig í þjálfarateyminu en hann þekkir vel til í Mosfellsbænum enda spilað með öllum mosfellsku liðunum auk þess að hafa þjálfað í yngri flokkum Aftureldingar.

Þeir taka við af Sindra Snæ Ólafssyni og Grétari Óskarsyni.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.