FH kveður Eggert Gunnþór Jónsson á samfélagsmiðlum sínum í dag en hann heldur heim og verður spilandi aðstoðarþjálfari hjá KFA, Knattspyrnufélagi Austfjarða, í 2. deildinni.
„Við þökkum honum innilega fyrir þessi þrjú ár hjá okkur og óskum honum góðs gengis í komandi verkefnum," segir á miðlum FH.
„Við þökkum honum innilega fyrir þessi þrjú ár hjá okkur og óskum honum góðs gengis í komandi verkefnum," segir á miðlum FH.
Eggert lokar þar með hringnum en hann hóf meistaraflokksferilinn með Fjarðabyggð sumarið 2004. KFA, sem Mikael Nikulásson þjálfar, var markatölunni frá því að komast upp í Lengjudeildina á síðasta tímabili.
„Þeir voru nálægt því að fara upp í fyrra og það eru stórhuga menn á bak við liðið, frábær þjálfari og flott teymi. Menn ætla að taka skrefið lengra, stefna á það að fara upp og byggja til framtíðar. Búa til almennilegt fótboltalið þarna," sagði hinn 35 ára Eggert í samtali við Stöð 2.
„Ég vildi gefa eitthvað af mér til baka, bæði í samfélaginu en líka að hjálpa að búa vonandi til gott lið til framtíðar. Nú er líka verið að fara í það að sameina alla yngri flokkana undir eitt lið. Það var gott tækifæri fyrir mig að koma inn í þar og hjálpa til,"
Athugasemdir



