Fotbolti.net
07.02.24 - 15:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Laufey Harpa aftur í Tindastól (Staðfest)

Laufey Harpa aftur í Tindastól (Staðfest)
Canon

Mynd: Sigurður Ingi Pálsson

Hertz
Tindastóll hefur landað ansi öflugum bita því Laufey Harpa Halldórsdóttir mun spila með liðinu í sumar.

Laufey er bakvörður sem uppalin er hjá Tindastóli en skipti í Breiðablik fyrir tímabilið 2022. Hún lék með Tindastóli í fyrra á láni og skiptir nú alfarið.
Laufey, sem á að baki sex leiki fyrir yngri landsliðin, gerir eins árs samning við Tindastól. Hún verður 24 ára í maí.

Tindastóll hélt sæti sínu í Bestu deildinni í fyrra. Liðið endaði í 7. sæti og hélt sæti sínu með sigri á ÍBV í lokaumferðinni. Laufey lék alla leiki nema tvo á síðasta tímabili og var tvisvar í liði umferðarinnar hér á Fótbolti.net.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.