Fotbolti.net
07.02.24 - 06:00
Brynjar Ingi Erluson

Valur fær unglingalandsliðsmarkvörð frá Breiðabliki (Staðfest)

Valur fær unglingalandsliðsmarkvörð frá Breiðabliki (Staðfest)
Canon

Mynd: Breiðablik

Valur hefur gengið frá þriggja ára samning við unglingalandsliðsmarkvörðinn Hilmar Karlsson en hann kemur frá Breiðabliki.
Hilmar er 17 ára gamall og uppalinn í Breiðabliki, en hann á að baki fimm leiki fyrir yngri landslið Íslands.

Hann hefur spilað tvo leiki fyrir U16 ára landsliðið og þrjá með U17.

Valur hefur nú krækt í þennan efnilega markvörð sem skrifaði undir þriggja ára samning við Hlíðarendafélagið.

Hilmar fór tvívegis á reynslu hjá Midtjylland meðan hann var á mála hjá Breiðabliki og því mikið í hann spunnið.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.