Fotbolti.net

Leita

Leita í fréttum

Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.

Leitarhamur

Dagsetning

Ef ekkert leitarorð er slegið inn notar síðan dagsetninguna sem einfalt fréttasafnsfilter.

Niðurstöður

Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögn og texta skilaði 25152 niðurstöðum.

Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.

Niðurstöður

FRÉTTIR19.01.2024, 17:20

Perisic til Hajduk Split (Staðfest)

Ivan Perisic hefur yfirgefið Tottenham en hann er kominn heim til Króatíu og verður á lánssamningi hjá Hajduk Split út tímabilið. Samningu þessa fjölhæfa leikmanns við Tottenham rennur út í sumar og hefur hann því leikið sinn síðasta leik fyrir félagið. Perisic, sem er 34 ára, hefur verið á meiðslalistanum síðan í september.

FRÉTTIR19.01.2024, 15:09

Indriði Áki leggur skóna á hilluna (Staðfest)

Indriði Áki Þorláksson tilkynnti rétt í þessu að hann væri búinn að ákveða að leggja skóna á hilluna. Indriði er 28 ára miðjumaður sem leikið hefur með ÍA, Val, Leikni, FH, Fram, Keflavík, Haukum, Kára og Víkingi Ólafsvík. Indriði var í lykilhlutverki þegar ÍA vann Lengjudeildina í fyrra og tryggði sér með því sæti í Bestu deildinni á komandi tímabili. Indriði lék 21 leik og skoraði tvö mörk. Hann var þar á undan hluti af liði Fram sem fór taplaust í gegnum Lengjudeildina tímabilið 2021 og hélt sér svo uppi á fyrsta tímabili í Bestu.

FRÉTTIR19.01.2024, 12:53

Selma Sól til Nurnberg (Staðfest)

Selma Sól Magnúsdóttir var í morgun tilkynnt sem nýr leikmaður FC Nurnberg í Þýskalandi. Hún kemur til félagsins eftir að hafa spilað með Rosenborg í Noregi undanfarin ár. Selma er 25 ára íslensk landsliðskona sem varð bikarmeistari með Rosenborg á liðinni leiktíð. Hún lék alls 63 leiki með Rosenborg, skoraði átta mörk og lagði upp tólf. Hún er uppalin hjá Breiðabliki en hélt til Rosenborgar eftir tímabilið 2021. Hún á að baki 33 landsleiki og í þeim hefur hún skorað fjögur mörk og lagt upp tvö. Hjá Nurnberg verður Selma númer 37.

FRÉTTIR19.01.2024, 09:35

Hareide framlengir út 2025 (Staðfest)

KSÍ hefur samið við Norðmanninn Age Hareide um framlengingu á samningi hans sem þjálfari A landsliðs karla. Samningurinn gildir út árið 2025 og í honum eru bæði uppsagnarákvæði og framlengingarákvæði. Uppsagnarákvæði er við lok Þjóðadeildarinnar 2024. Samningurinn framlengist sjálfkrafa ef Ísland er í umspili um sæti í lokakeppni HM 2026 og framlengist einnig sjálfkrafa ef Ísland kemst í lokakeppni HM 2026. Hareide tók við þjálfun A landsliðs karla í apríl á síðasta ári og stýrði liðinu í átta leikjum í undankeppni EM það ár og í tveimur vináttuleikjum í janúar á þessu ári. Framundan eru umspilsleikir í mars um sæti í lokakeppni EM 2024 þar sem Ísland mætir Ísrael, og sigurvegarinn úr þeirri viðureign mætir annað hvort Bosníu-Hersegóvínu eða Úkraínu.

FRÉTTIR18.01.2024, 20:00

Jordan Henderson til Ajax (Staðfest)

Hollenska félagið Ajax hefur landað enska landsliðsmanninum Jordan Henderson á frjálsri sölu eftir að hann rifti samningi sínum við sádi-arabíska félagið Al Ettifaq.

FRÉTTIR18.01.2024, 19:48

Sveinn Aron í Hansa Rostock (Staðfest)

Íslenski landsliðsmaðurinn Sveinn Aron Guðjohnsen er nú formlega genginn í raðir þýska B-deildarliðsins Hansa Rostock frá sænska félaginu Elfsborg.

FRÉTTIR18.01.2024, 14:11

Olav Öby í norsku C-deildina (Staðfest)

Norski miðjumaðurinn Olav Öby lék með KR á síðasta tímabili. Hann skrifaði undir tveggja ára samning hjá KR en eftir síðasta tímabil náðu hann og KR samkomulagi um að leiðir myndu skilja. Öby, sem er 29 ára gamall, er búinn að finna sér nýtt félag. Hann mun spila með Kjelsås á komandi tímabili.

FRÉTTIR18.01.2024, 11:00

Fyrirliðinn farinn frá ÍBV og spilar með Ingibjörgu í Þýskalandi (Staðfest)

Haley Marie Thomas, fyrirliði ÍBV síðustu tvö tímabil, fékk á dögunum félagaskipti til Þýskalands. Í morgun var hún svo tilkynnt sem nýr leikmaður Duisburg sem spilar í þýsku Bundesliga, efstu deild. Samningur hennar gildir út tímabilið en ef Duisburg heldur sér uppi er árs framlenging í boði. Hún verður þar liðsfélagi landsliðsmiðvarðarins Ingibjargar Sigurðardóttur sem gekk í raðir félagsins á dögunum.

FRÉTTIR18.01.2024, 10:30

Sevilla fær Mejia frá Man Utd (Staðfest) - Árangurstengdar greiðslur

Sevilla hefur fengið framherjann Mateo Mejia í sínar raðir frá Manchester United. Mejia er tvítugur og hefur verið í fjögur og hálft ár í akademíu Manchester United. Hann kom til enska félagsins frá Real Zaragoza árið 2019. Hann er fæddur í Zaragoza en getur einnig spilað með kólumbíska landsliðinu þar sem foreldrar hans eru þaðan. Hann lék sinn fyrsta leik fyrir U20 landslið Kólumbíu í desember 2022.

FRÉTTIR18.01.2024, 09:56

Víðir fær spænskan framherja frá Tindastóli (Staðfest)

Víðismenn eru að þétta raðirnar fyrir komandi átök í 3. deildinni og tilkynntu í morgun um komu leikmanns. Sá er spænskur framherji sem lék með Tindastóli á síðasta tímabili. David Toro heitir hann, er 26 ára og skoraði hann 8 mörk í 13 deildarleikjum. <i>&bdquo;Þá hefur hann einnig leikið í neðri deildum Spánar og Ítalíu. Við bjóðum David hjartanlega velkominn til félagsins og hlökkum til að sjá hann á Nesfisk-vellinum í sumar,"</I> segir í tilkynningu Víðis.

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.