Fotbolti.net
18.01.24 - 20:00
Brynjar Ingi Erluson

Jordan Henderson til Ajax (Staðfest)

Jordan Henderson mun klæðast treyju númer 6

Jordan Henderson mun klæðast treyju númer 6

Canon

Mynd: Ajax

Hollenska félagið Ajax hefur landað enska landsliðsmanninum Jordan Henderson á frjálsri sölu eftir að hann rifti samningi sínum við sádi-arabíska félagið Al Ettifaq.
Henderson kom til Al Ettifaq frá Liverpool fyrir 12 milljónir punda síðasta sumar í mjög svo umdeildum félagaskiptum, en hann var ötull talsmaður fyrir hinsegin fólk og valdi það að spila í landi þar sem samkynhneigð er refsiverð.

Englendingurinn fékk mikla og harða gagnrýni fyrir félagaskipti sín, en hann sagðist ætla að hjálpa til við að styrkja deildina og koma henni á hærri stall.

Enskir miðlar greindu frá því í byrjun árs að Henderson og fjölskylda hans væru ekki að ná að aðlagast lífinu í Sádi-Arabíu og að þau vildu snúa aftur til Evrópu.

Al Ettifaq hefur nú staðfest að samningi Henderson hefur verið rift og nokkrum mínútum síðar tilkynnti Ajax komu hans, en samningur hans við hollenska félagið er til 2026.

„Ég vil þakka félaginu, stuðningsmönnum og öllum þeim sem koma að félaginu fyrir tækifærið og óska þeim alls hins besta það sem eftir er af þessu tímabili. Það er mikil vinna lögð í þetta sem ég veit að mun skila sér í framtíðinni,“ sagði Henderson um dvöl sína hjá Al Ettifaq.

Hjá Ajax hittir hann íslenska landsliðsmanninn Kristian Nökkva Hlynsson, sem er búinn að vera í aðahlutverki á þessari leiktíð, en Ajax er í 5. sæti deildarinnar með 28 stig.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.