Selma Sól til Nurnberg (Staðfest)

Mynd: Nurnberg

Mynd: Nurnberg

Selma Sól Magnúsdóttir var í morgun tilkynnt sem nýr leikmaður FC Nurnberg í Þýskalandi. Hún kemur til félagsins eftir að hafa spilað með Rosenborg í Noregi undanfarin ár.
Selma er 25 ára íslensk landsliðskona sem varð bikarmeistari með Rosenborg á liðinni leiktíð. Hún lék alls 63 leiki með Rosenborg, skoraði átta mörk og lagði upp tólf.
Hún er uppalin hjá Breiðabliki en hélt til Rosenborgar eftir tímabilið 2021. Hún á að baki 33 landsleiki og í þeim hefur hún skorað fjögur mörk og lagt upp tvö.
Hjá Nurnberg verður Selma númer 37.

TENGT EFNI
Selma Sól orðin félagslaus - Ekkert staðfest eða vitað sem stendur
Íþróttastjórinn hafði eftirfarandi að segja um Selmu:
„Við erum mjög ánægð með að Selma hafi valið Nürnberg. Við vildum bætta 'transition' leikinn okkar með boltann og með henni erum við að fá mjög öflugan miðjumann."
Selma hafði sjálf eftirfarandi að segja:
„Við þurfum ekki að tala um það: að spila í þýsku Bundesligunni kvenna er stórt dæmi. Ég vil nota reynslu mína og eiginleika mína til að hjálpa félaginu að halda sér í deildinni. Ég hlakka til áskorunarinnar og get ekki beðið eftir að byrja með 1. FC Nürnberg."
Nurnberg er í harðri fallbaráttu. Liðið er í næstneðsta sæti deildarinnar þegar tólf umferðir eru eftir, stigi frá öruggu sæti. Liðið hefur einungis skorað fimm mörk í tíu leikjum og er þremur stigum fyrir ofan botnlið Duisburg sem krækti í Ingibjörgu Sigurðardóttur á dögunum.