Fotbolti.net
18.01.24 - 19:48
Brynjar Ingi Erluson

Sveinn Aron í Hansa Rostock (Staðfest)

Sveinn Aron er mættur í þýsku B-deildina

Sveinn Aron er mættur í þýsku B-deildina

Canon

Mynd: Hansa Rostock

Íslenski landsliðsmaðurinn Sveinn Aron Guðjohnsen er nú formlega genginn í raðir þýska B-deildarliðsins Hansa Rostock frá sænska félaginu Elfsborg.
Sveinn Aron hefur verið hjá Elfsborg síðan hann kom frá Spezia sumarið 2021. Hann hefur skorað átján mörk í 79 leikjum fyrir félagið.

Aftonbladet greindi frá því í dag að Sveinn Aron væri á leið til Þýskalands, en hann fór í læknisskoðun í dag áður en hann skrifaði undir samning sem gildir til 2026.

Sveinn mun mæta á sína fyrstu æfingu með hópnum á morgun og mun klæðast treyju númer 45, að minnsta kosti seinni hluta tímabilsins.

Hansa Rostock er í 16. sæti þýsku B-deildarinnar með 17 stig og því í harðri baráttu um að halda sér uppi.

Íslendindingarnir í B-deildinni eru nú fjórir en þeir Hólmbert Aron Friðjónsson, Ísak Bergmann Jóhannesson og Þórir Jóhann Helgason eru einnig þar.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.