Ari Leifsson yfirgefur Strömsgodset (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Árbæingurinn Ari Leifsson hefur yfirgefið norska félagið Strömgodset en samningur hans við félagið rann út um áramótin.

TENGT EFNI
Ari að verða samningslaus - „Er búinn að vera í einhverjum viðræðum"
Ari, sem er 25 ára gamall varnarmaður, samdi við Strömgodset árið 2019 eftir að hafa spilað frábærlega með Fylki.
Á þessum fjórum árum með Strömsgodset spilaði hann alls 62 deildarleiki og skoraði tvö mörk.
Samningur hans við norska félagið rann út um áramótin en hann hafði möguleika á því að framlengja hann. Nú er hins vegar ljóst að hann verður ekki áfram og því nýtt ævintýri framundan hjá kappanum.
Umboðsmaður Ara hefur átt í viðræðum við nokkur félög og mun það væntanlega ráðast á næstu dögum.
Ari ræddi við Fótbolta.net um lífið í Noregi, síðasta tímabil, viðræður og margt fleira í viðtali sem birtist 21. desember en það má sjá í spilaranum hér fyrir neðan.