Fotbolti.net
19.01.24 - 09:35
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Hareide framlengir út 2025 (Staðfest)

Hareide framlengir út 2025 (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

KSÍ hefur samið við Norðmanninn Age Hareide um framlengingu á samningi hans sem þjálfari A landsliðs karla. Samningurinn gildir út árið 2025 og í honum eru bæði uppsagnarákvæði og framlengingarákvæði.

Uppsagnarákvæði er við lok Þjóðadeildarinnar 2024. Samningurinn framlengist sjálfkrafa ef Ísland er í umspili um sæti í lokakeppni HM 2026 og framlengist einnig sjálfkrafa ef Ísland kemst í lokakeppni HM 2026.

Hareide tók við þjálfun A landsliðs karla í apríl á síðasta ári og stýrði liðinu í átta leikjum í undankeppni EM það ár og í tveimur vináttuleikjum í janúar á þessu ári. Framundan eru umspilsleikir í mars um sæti í lokakeppni EM 2024 þar sem Ísland mætir Ísrael, og sigurvegarinn úr þeirri viðureign mætir annað hvort Bosníu-Hersegóvínu eða Úkraínu.
Vill stýra Íslandi lengur - „Beðinn um að halda áfram með liðið"
TENGT EFNI

Vill stýra Íslandi lengur - „Beðinn um að halda áfram með liðið"

„Ég hef virkilega notið þess að þjálfa Ísland þetta tæpa ár sem ég hef verið með liðið og ég hlakka til komandi verkefna. Þó liðið sé í ákveðnum uppbyggingarfasa þá er líka mikilvægt að ná úrslitum, og akkúrat núna er öll okkar áhersla og allur okkar fókus á umspilsleikinn við Ísrael í mars. Við ætlum okkur á EM í Þýskalandi. Ég hef mikla trú á liðinu og leikmönnunum, þetta er hæfileikaríkur og metnaðarfullur hópur, starfsfólk og umgjörð liðsins er fyrsta flokks, og við getum náð árangri með samstöðu og góðu skipulagi," sagði Hareide við undirskrift.

„Við erum mjög ánægð með að hafa framlengt samninginn við Åge Hareide og höfum mikla trú á honum og hans starfi. Það er verðugt verkefni fyrir hvaða þjálfara sem er að sameina það tvennt að halda áfram uppbyggingu nýs liðs og á sama tíma að ná árangri á vellinum, og við erum sannfærð um að Åge sé rétti þjálfarinn í það verkefni, með alla sína reynslu og þekkingu á landsliðsfótbolta," sagði Vanda Sigurgeirsdóttir formaður KSÍ.
Hareide framlengir út 2025 (Staðfest)
Canon

Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.