Fotbolti.net
18.01.24 - 21:41
Brynjar Ingi Erluson

Gerrard framlengir við Al Ettifaq til 2027 (Staðfest)

Steven Gerrard verður áfram í Sádi-Arabíu

Steven Gerrard verður áfram í Sádi-Arabíu

Canon

Mynd: EPA

Steven Gerrard, þjálfari Al Ettifaq í Sádi-Arabíu, hefur framlengt samning sinn við félagið til 2027.
Fréttirnar eru nokkuð óvæntar en Athletic fjallaði um það fyrr í þessum mánuði að Al Ettifaq væri að íhuga það að reka Gerrard úr starfi.

Al Ettifaq er án sigurs í síðustu átta leikjum en liðið situr í 8. sæti deildarinnar, 28 stigum frá toppsætinu.

Gerrard hefur nú óvænt framlengt samning sinn til næstu þriggja ára eða til 2027.

Félagið hefur greinilega tröllatrú á því að Gerrard geti snúið gengi liðsins við og þá fær hann loforð um að hópurinn verði styrktur frekar á næstu mánuðum.

Jordan Henderson, samlandi og fyrrum liðsfélagi Gerrard, rifti samningi sínum við Al Ettifaq í dag og samdi við Ajax í Hollandi, en Gerrard virðist kunna vel við sig í Sádi-Arabíu.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.