Villarreal fær Guedes frá Wolves (Staðfest)

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Spænska félagið Villarreal er búið að staðfesta komu Goncalo Guedes á lánssamningi frá Wolves sem gildir út tímabilið.
Villarreal borgar full laun Guedes á dvöl hans hjá félaginu, en Guedes varði fyrra hluta tímabilsins á láni hjá uppeldisfélagi sínu Benfica.
Guedes átti erfitt uppdráttar í heimalandinu og reynir nú fyrir sér á Spáni, en hann býr yfir mikilli reynslu úr spænska boltanum eftir fimm ára dvöl í Valencia.
Úlfarnir keyptu Guedes fyrir rúmlega 30 milljónir evra sumarið 2022 en hann fann aldrei taktinn í enska boltanum. Þessi portúgalski landsliðsmaður, með 7 mörk í 32 landsleikjum, er samningsbundinn Wolves í þrjú og hálft ár í viðbót.
Guedes er 27 ára gamall og er vinstri kantmaður að upplagi en getur einnig spilað í fremstu víglínu eða á hægri kanti.

Welcome, Gonçalo ????! pic.twitter.com/TxRIExbmDJ
— Villarreal CF English (@VillarrealCFen) January 19, 2024