Fotbolti.net
19.01.24 - 17:40
Ívan Guðjón Baldursson

Hildur Karítas áfram í Mosfellsbæ (Staðfest)

Hildur Karítas áfram í Mosfellsbæ (Staðfest)
Canon

Mynd: Raggi Óla

Hertz
Hildur Karítas Gunnarsdóttir er búin að framlengja samning sinn við Aftureldingu þar sem hún er í algjöru lykilhlutverki.
Þetta eru frábærar fregnir fyrir félagið enda skoraði Hildur 8 mörk í 16 leikjum í Lengjudeildinni í fyrra.

Samningurinn gildir út næstu tvö keppnistímabil og á Hildur að hjálpa Aftureldingu að berjast um sæti í Bestu deild kvenna á ný.

„Virkilega mikilvægt fyrir okkur sem félag að halda leikmanni eins og Hildi. Það sýnir í raun mátt félagsins þegar við getum haldið leikmönnum hjá félaginu á þessu kaliberi," er meðal þess sem Perry Mclachlan, þjálfari Aftureldingar, hafði að segja. „Við gætum ekki verið ánægðari með að halda henni og þá trú sem hún hefur á því hvert félagið stefnir."

Það var mikill áhugi á Hildi frá félögum úr Bestu deild kvenna, en hún ákvað að vera áfram í Mosfellsbæ.

Hildur er fædd 1998 og lék einn leik fyrir U19 landslið Íslands.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.