Real Sociedad kaupir Sheraldo Becker frá Union Berlín (Staðfest)

Mynd: Real Sociedad

Mynd: Real Sociedad
Spænska félagið Real Sociedad kynnti í dag nýjan leikmenn en Sheraldo Becker er kominn til félagsins frá Union Berlín í Þýskalandi.
Becker er 28 ára gamall vængmaður sem getur einnig leyst stöðu fremsta manns.
Hann eyddi tæpum fimm árum hjá Union en hann kom til liðsins frá hollenska félaginu Ado den Haag árið 2019.
Becker átti sitt besta tímabil með Union á síðustu leiktíð en þá skoraði hann ellefu deildarmörk. Á þessu tímabili hefur hann ekki alveg náð sömu hæðum og aðeins gert þrjú mörk í átján leikjum í öllum keppnum.
Áhuginn á honum var samt sem áður til staðar og hefur spænska félagið Real Sociedad nú fest kaup á honum. Kaupverðið er um 2,1 milljónir evra og gildir samningurinn til 2026.
Becker er fæddur og uppalinn í Hollandi, en á ættir sínar að rekja til Súrinam eins og margir af bestu leikmönnum hollenska fótboltans.