Hamed Traore til Napoli (Staðfest)
Ítalska félagið Napoli staðfesti í dag komu Hamed Traore frá Bournemouth en hann gerir lánssamning út tímabilið með möguleika á að gera skiptin varanleg í sumar.
Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.
Niðurstöður
Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögn og texta skilaði 25152 niðurstöðum.
Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.
Ítalska félagið Napoli staðfesti í dag komu Hamed Traore frá Bournemouth en hann gerir lánssamning út tímabilið með möguleika á að gera skiptin varanleg í sumar.
Markvörðurinn Hjörvar Daði Arnarsson hefur gert tveggja ára samning við ÍBV. Hann kemur frá HK þar sem hann hefur verið á samningi síðan 2018. Frá þessu greinir ÍBV nú rétt í þessu.
Portúgalska félagið Benfica hefur fengið varnarmanninn tvítuga Alvaro Fernandez frá Manchester United á lánssamningi út tímaibilið. Fernandez var áður í yngri liðum Real Madrid en hann var á láni hjá Granada fyrri hluta tímabilsins. <i>BBC</i> segir að Benfica sé með klásúlu um að geta keypt Fernandez á sex milljónir evra eftir tímabilið. Félagið er skyldugt til að kaupa hann ef hann byrjar 50% leikja eða fleiri. Þá gæti upphæðin hækkað um 3 milljónir evra til viðbótar að uppfylltum ákveðnum ákvæðum.
Njarðvík tilkynnti í dag um komu nýs leikmanns til félagsins. Amin Cosic er genginn í raðir félagsins frá HK og skrifar undir tveggja ára samning. Samningur hans við HK rann út í lok síðasta árs. <i>„Amin er 18 ára sóknarsinnaður leikmaður sem kemur til liðs við okkur frá HK þar sem hann er að ganga upp úr 2. flokki þar en þar hefur hann skorað mikið fyrir 2. flokks lið HK ásamt því að eiga 1 leik fyrir meistaraflokk HK sumarið 2022 í Lengjudeildinni,"</I> segir í tilkynningu Njarðvíkur.
Margrét Rún Stefánsdóttir er gengin til liðs við Gróttu eftir að hafa komið upp í gegnum yngriflokkastarfið á Sauðárkróki.
Liverpool er búið að lána varnarmanninn Rhys Williams til Port Vale út tímabilið, eftir misheppnaða dvöl á láni hjá Aberdeen í Skotlandi.
Danski markvörðurinn Mathias Rosenörn hefur skrifað undir þriggja ára samning við Stjörnuna, samningurinn gildir út tímabilið 2026. Hann er þrítugur og varði mark Keflavíkur á síðasta tímabili. Hann mun hjá Stjörnunni fara í samkeppni við Árna Snæ Ólafsson sem varði mark liðsins á síðasta tímabili.
Daniele De Rossi hefur verið ráðinn stjóri Roma og skrifaði hann undir samning út tímabilið. Hann mun stýra sinni fyrstu æfingu hjá liðinu síðdegis. <i>„Eftir átján ára leikmannaferil hjá Roma snýr De Rossi heim sem aðalþjálfari. Hans fyrsti leikur verður gegn Verona á laugardag. Velkominn aftur heim,“</i> segir í tilkynningu Roma.
Svissneska knattspyrnusambandið var að tilkynna um stóra ráðningu því Pia Sundhage hefur verið ráðin þjálfari kvennalandsliðsins í Sviss.
Eins og greint var frá á dögunum þá mun Þorri Stefán Þorbjörnsson spila með Fram í sumar. Fram hefur nú staðfest að Þorri er mættur til félagsins. Hann kemur á láni frá danska félaginu Lyngby. Hann samdi við Lyngby síðasta sumar, var keyptur þangað frá FH en hann er uppalinn í Fram.
Danski miðjumaðurinn Matthias Præst er genginn í raðir Fylkis á samningi út árið.
Landsliðskonan Ólöf Sigríður Kristinsdóttir er gengin í raðir Breiðabliks frá Þrótti. Hún skrifar undir samning við Kópavogsfélagið sem gildir til ársins 2026. Hjá Breiðabliki hitti Olla, eins og hún er kölluð, gamla þjálfarann sinn, Nik Chamberlain.
Roma, sem situr í níunda sæti ítölsku A-deildarinnar, er búið að reka Jose Mourinho. Hans síðasti leikur við stjórnvölinn var 3-1 tap gegn AC Milan á sunnudaginn. Í tilkynningu Roma þakka eigendurnir Dan og Ryan Friedkin honum fyrir framlag sitt og ástríðu í starfi. Roma er með 29 stig, fimm stigum frá Fiorentina sem er í fjórða sætinu. Liðið hefur skorað 32 mörk og fengið á sig 24 í fyrstu 20 deildarleikjunum.
KFA er búið að næla sér í tvo uppalda Austfirðinga sem fluttu í Hafnarfjörðinn en ætla að taka slaginn á Austfjörðum í ár.
Southampton er búið að krækja í Joe Rothwell á lánssamningi frá Bournemouth sem gildir út tímabilið.
Manchester United hefur ákveðið að lána miðjumanninn Hannibal Mejbri til spænska úrvalsdeildarfélagsins Sevilla.
Alex Þór Hauksson var rétt í þessu kynntur sem nýr leikmaður KR. Hann kemur til félagsins á frjálsri sölu frá Öster þar sem samningur hans var útrunninn. Alex er Álftnesingur sem lék með Stjörnunni áður en hann hélt í atvinnumennsku eftir tímabilið 2020. Alex skrifar undir samning sem gildir út tímabilið 2026. <i>„Það er okkur sönn ánægja að bjóða Alex velkominn til KR. Við bindum miklar væntingar við hann og erum sannfærð um að karakter hans, leiðtogahæfileikar og hugarfar muni hjálpa liðinu okkar að komast í fremstu röð aftur. Koma Alex staðfestir að KR nær að laða að sér bestu leikmennina sem í boði eru og teflir fram sterku liði á komandi tímabili,"</I> segir Gregg Ryder í tilkynningu KR.
Sóknarmaðurinn Murielle Tiernan hefur samið við Fram út tímabilið og mun því leika með meistaraflokki kvenna í Lengjudeildinni í sumar. Frá þessu greinir félagið í tilkynningu sem birt var rétt í þessu. Hún mun spila frammi með Öldu Ólafsdóttur sem gekk í raðir Fram fyrr í vetur.
Srdjan Tufegdzic, Túfa, heldur áfram að þjálfa í sænsku B-deildinni en hann hefur verið ráðinn til Skövde AIK. Túfa, sem er fyrrum þjálfari Grindavíkur og KA og var aðstoðarþjálfari Vals, var látinn fara frá Öster eftir síðasta tímabil. Skövde hafnaði í 13. sæti deildarinnar og vann í umspili um áframhaldandi veru í deildinni. Túfa gerði tveggja ára samning við félagið.
FH hefur gengið frá samningum við Ídu Marín Hermannsdóttur en hún kemur til félagsins frá Val. Þetta kemur fram í tilkynningu frá FH-ingum í dag.