Hannibal til Sevilla (Staðfest) - Geta svo keypt hann

Hannibal Mejbri.

Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir

Hannibal Mejbri.

Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir
Manchester United hefur ákveðið að lána miðjumanninn Hannibal Mejbri til spænska úrvalsdeildarfélagsins Sevilla.
Mejbri, sem er tvítugur, var eftirsóttur af mörgum liðum en hann hafnaði Everton, Freiburg og Lyon til að ganga í raðir Sevilla.
Mejbri hefur komið við sögu í tíu leikjum með United á tímabilinu og gert eitt mark.
Samkvæmt Fabrice Hawkins, fréttamanni RMC Sport, þá mun Sevilla eiga möguleika á því að kaupa Mejbri fyrir 20 milljónir evra að lánssamningnum loknum.
Hann segir jafnframt að ef Sevilla nýtir sér það ákvæði, þá eigi United möguleika á að kaupa hann aftur síðar fyrir 35 milljónir evra.
Mejbri mun klæðast treyju númer 46 hjá Sevilla.

????Hannibal Mejbri to Sevilla its done ?
— Fabrice Hawkins (@FabriceHawkins) January 15, 2024
????Loan : 6 months + buy option 20M€
????Manchester United has a buy back clause 35M€
????Medical tests Ok
????Contract is signed with his agent Rochild Dzabana ??????
???? Number 4??6?????????? pic.twitter.com/E9yJzNur46