Murielle Tiernan í Fram (Staðfest)

Mynd: Sigurður Ingi Pálsson

Mynd: Sigurður Ingi Pálsson

Sóknarmaðurinn Murielle Tiernan hefur samið við Fram út tímabilið og mun því leika með meistaraflokki kvenna í Lengjudeildinni í sumar.
Frá þessu greinir félagið í tilkynningu sem birt var rétt í þessu. Hún mun spila frammi með Öldu Ólafsdóttur sem gekk í raðir Fram fyrr í vetur.

TENGT EFNI
Murielle kveður Tindastól - Á leið í Fram
Murielle er vel þekkt stærð í íslenskum fótbolta en hún hefur spilað með Tindastól síðustu sex ár þar sem hún hefur skorað 117 mörk í 129 leikjum.
„Hún kemur með mikil gæði inn í liðið, er gríðarlega sterk og hröð, með góðan skotfót og mikla reynslu. Murielle er mikill liðsmaður og á vafalaust eftir að gefa mikið af sér í hópnum, sem yngri leikmenn liðsins eiga eftir að njóta góðs af," segir í tilkynningunni.
„Við hlökkum mikið til að fá Muriel til liðs við félagið og erum mjög spennt að sjá hana í bláu treyjunni í sumar."