Fotbolti.net
15.01.24 - 23:00
Ívan Guðjón Baldursson

KFA fær tvo efnilega á láni frá FH (Staðfest)

KFA fær tvo efnilega á láni frá FH (Staðfest)
Canon

Mynd: KFA

KFA er búið að næla sér í tvo uppalda Austfirðinga sem fluttu í Hafnarfjörðinn en ætla að taka slaginn á Austfjörðum í ár.
Tómas Atli Björgvinsson og Þór Sigurjónsson eru báðir fæddir árið 2005 og eru samningsbundnir FH, en þeir koma til KFA á eins árs lánssamningum.

Tómas Atli lék 8 leiki með KFA í 2. deildinni sumarið 2022 en Þór á ekki leik að baki með meistaraflokki Austfirðinga. Hann var hins vegar fastamaður í byrjunarliði ÍH í 3. deildinni í fyrra.

„Stjórn KFA er himinlifandi með að fá þessa tvo ungu Austfirðinga heim og hlakkar til komandi sumars með þeim!" segir meðal annars í tilkynningu frá KFA.

KFA leikur í 2. deild eftir að hafa verið hársbreidd frá því að komast upp í Lengjudeildina í fyrra.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.