Fotbolti.net
15.01.24 - 20:40
Ívan Guðjón Baldursson

Bournemouth lánar Rothwell til Southampton (Staðfest)

Bournemouth lánar Rothwell til Southampton (Staðfest)
Canon

Mynd: EPA

Southampton er búið að krækja í Joe Rothwell á lánssamningi frá Bournemouth sem gildir út tímabilið.
Rothwell er 29 ára miðjumaður sem gekk til liðs við Bournemouth fyrir einu og hálfu ári síðan en hefur ekki fengið mikinn spiltíma í ensku úrvalsdeildinni.

Hann er ekki í byrjunarliðsáformum Andoni Iraola knattspyrnustjóra og fær því að reyna fyrir sér með Southampton sem er í toppbaráttu í Championship deildinni.

Rothwell býr yfir mikilli reynslu úr Championship eftir fjögurra ára dvöl hjá Blackburn Rovers áður en hann gekk til liðs við Bournemouth. Hann er samningsbundinn Bournemouth til júní 2026 en félagið er reiðubúið til að selja hann ódýrt frá sér.

Rothwell er enskur og lék 16 leiki fyrir yngri landslið Englands en tók aldrei stökkið upp í A-landsliðið. Hann er uppalinn hjá Manchester United.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.