Túfa tekur við Skövde AIK (Staðfest)

Túfa er fyrrum aðstoðarþjálfari Vals.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Túfa er fyrrum aðstoðarþjálfari Vals.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Srdjan Tufegdzic, Túfa, heldur áfram að þjálfa í sænsku B-deildinni en hann hefur verið ráðinn til Skövde AIK.
Túfa, sem er fyrrum þjálfari Grindavíkur og KA og var aðstoðarþjálfari Vals, var látinn fara frá Öster eftir síðasta tímabil.
Skövde hafnaði í 13. sæti deildarinnar og vann í umspili um áframhaldandi veru í deildinni. Túfa gerði tveggja ára samning við félagið.

Per Åstemo íþróttastjóri Skövde segir í viðtali við heimasíðu félagsins að hann sé spenntur fyrir samstarfinu. Túfa búi yfir hæfileikum til að þróa leikmenn og segir hann hafa skýra fótboltasýn sem passi vel inn í félagið.
„Skövde AIK hlakka til komandi tímabils undir stjórn Srdjan Tufegdzic og er sannfært um að þetta verði árangursríkur kafli hjá félaginu," segir á heimasíðunni.
„Skövde AIK hlakka til komandi tímabils undir stjórn Srdjan Tufegdzic og er sannfært um að þetta verði árangursríkur kafli hjá félaginu," segir á heimasíðunni.
??? | Skövde AIK är glada att kunna presentera Srdjan Tufegdzic som klubbens nya huvudtränare. Tufegdzic, även kallad som "Tufa", kommer senast från Östers IF.
— Skövde AIK (@skovdeaik) January 15, 2024
Avtalet är skrivet på två år.
Intervju finns ute i appen och läs mer https://t.co/7yweq96IAE#skovdeaik #superettan pic.twitter.com/FoZ6ceWQjx