Fotbolti.net
14.01.24 - 18:04
Brynjar Ingi Erluson

Ída Marín í FH (Staðfest)

Ída Marín í FH (Staðfest)
Canon

Mynd: FH

Hertz
FH hefur gengið frá samningum við Ídu Marín Hermannsdóttur en hún kemur til félagsins frá Val. Þetta kemur fram í tilkynningu frá FH-ingum í dag.
Ída Marín er fædd árið 2002 en þessi efnilega fótboltakona er uppalin í Fylki.

Hún samdi við Val árið 2020 og spilaði alls 50 deildarleiki og gerði tíu mörk á fjórum tímabilum sínum með félaginu.

Ída er nú gengin í raðir FH frá Val en samningur hennar er til tveggja ára.

Öflugur leikmaður sem FH-ingar eru að fá en hún á alls 3 A-landsleiki fyrir Ísland og 29 leiki fyrir yngri landsliðin.

Hun er annar leikmaðurinn sem FH fær frá Val á nokkrum dögum en Hanna Kallmaier gekk í raðir félagsins.

FH hafnaði í 6. sæti Bestu deildarinnar á síðasta tímabili. Það vakti mikla athygli að liðið, sem var þá nýliði í deildinni, spilaði einhvern skemmtilegasta fótboltann í deildinni og verður gaman að sjá hvernig þeim mun vegna á komandi leiktíð.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.