Fotbolti.net

Leita

Leita í fréttum

Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.

Leitarhamur

Dagsetning

Ef ekkert leitarorð er slegið inn notar síðan dagsetninguna sem einfalt fréttasafnsfilter.

Niðurstöður

Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögnum skilaði 24437 niðurstöðum.

Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.

Niðurstöður

FRÉTTIR22.11.2023, 18:10

Alex Þór á förum frá Öster (Staðfest)

Alex Þór Hauksson verður ekki áfram hjá Öster. Þetta staðfesti hann í samtali við Fótbolta.net í dag. Tímabilinu í Svíþjóð er lokið fyrir utan umspilið um sæti í efstu deild sem Öster missti af í lokaumferðinni. Í Svíþjóð er hins vegar hefð fyrir því að æfa í smá tíma eftir að mótinu lýkur. Alex var í stóru hlutverki seinni hluta tímabilsins 2021, í lykilhlutverki á tímabilinu í fyrra en lék ekki jafnmikið á liðinni leiktíð; byrjaði 14 leiki af 30 og kom níu sinnum inn á sem varamaður.

FRÉTTIR22.11.2023, 16:30

Gylfi Tryggva aðstoðar Guðna hjá HK (Staðfest)

Gyfli Tryggvason, sem hefur stýrt liði Árbæjar undanfarin ár, er kominn með nýtt starf. Greint var frá því á dögunum að hann yrði ekki áfram með Árbæ og í dag var tilkynnt að hann væri nýr aðstoðarþrjálfari hjá HK. Hann mun aðstoða Guðna Þór Einarsson með þjálfun meistaraflokks kvenna. Gylfi skrifar undir tveggja ára samning við HK.

FRÉTTIR22.11.2023, 15:34

Guðni Bergs býður sig fram til formanns KSÍ (Staðfest)

Guðni Bergsson, fyrrum formaður KSÍ, hefur ákveðið að bjóða sig fram sem formaður. Nýr formaður verður kjörinn á ársþingi sambandsins í febrúar næstkomandi. Hann var formaður sambandsins á árunum 2017-2021. Hann sagði af sér sem formaður í ágúst 2021 í kjölfar frétta af meintri hylmingu sambandsins yfir kynferðisbrotum landsliðsmanna. Sitjandi formaður, Vanda Sigurgeirsdóttir, hefur tilkynnt að hún ætli ekki að gefa kost á sér áfram.

FRÉTTIR22.11.2023, 14:30

Selma Sól yfirgefur Rosenborg (Staðfest) - Tilboð frá Englandi

Fjallað er um það á norska miðlunum <i>adressa.no</I> að Selma Sól Magnúsdóttir sé á förum frá Rosenborg. Samningur hennar við norska félagið er að renna út og verður ekki skrifað undir nýjan samning. Þetta staðfesti hún við Fótbolta.net í dag.

FRÉTTIR22.11.2023, 13:52

Emelía nýtti sér ákvæði og yfirgefur Kristianstad (Staðfest)

Kristianstad tilkynnti í dag að sex leikmenn yrðu ekki lengur hjá félaginu. Á meðal þeirra er Emelía Óskarsdóttir. Hún skrifaði undir þriggja ára samning við félagið þegar hún gekk í raðir þess en nýtti sér uppsagnarákvæði í samningnum og er því laus allra mála. Hún var með ákvæði í samningi sínum sem fól það í sér að ef Elísabet Gunnarsdóttir myndi yfirgefa félagið þá gæti Emelía sagt upp samningi sínum við félagið. Elísabet yfirgaf félagið á dögunum eftir fimmtán ára veru. Hún gekk í raðir félagsins fyrir tímabilið 2022 og kom við sögu í 24 leikjum í sænsku deildinni á tíma sínum hjá Kristianstad. Fyrri hluta tímabilsins 2023 lék hún á láni með Selfossi.

FRÉTTIR22.11.2023, 13:00

Eyrún Vala í Fram (Staðfest)

Fram tilkynnti í dag að Eyrún Vala Harðardóttir hefur skrifað undir tveggja ára samning við félagið. Hún kemur frá Stjörnunni en hún lék á láni með HK seinni hluta tímabilsins 2023. Eyrún er uppalin í Breiðabliki og lék sitt fyrsta tímabil í meistaraflokki með Augnabliki sumarið 2019.

FRÉTTIR22.11.2023, 09:28

Kjartan Kári gerði þriggja ára samning við FH (Staðfest)

Kjartan Kári Halldórsson hefur gert þriggja ára samning við FH sem kaupir hann frá norska félaginu Haugesund. Kjartan var á láni hjá þeim allt síðasta tímabil. Óskar Hrafn Þorvaldsson tók nýlega við þjálfun Haugesund. Kjartan er tvítugur vængmaður sem lék 24 leiki í deild og bikar með FH á liðnu tímabili. Í þeim skoraði hann þrjú mörk og lagði upp tvö. Kjartan var keyptur til Haugesund frá Gróttu eftir frábært tímabil 2022.

FRÉTTIR21.11.2023, 18:32

Fyrirliði Keflavíkur leggur skóna á hilluna (Staðfest)

Varnarmaðurinn Magnús Þór Magnússon hefur lagt skóna á hilluna. Frá þessu var greint í hlaðvarpsþættinum <i>Gula Spjaldið</I> á föstudag og staðfesti Magnús tíðindin í samtali við Fótbolta.net í dag. Magnús er 31 árs og hefur borið fyrirliðabandið undanfarin ár.

FRÉTTIR21.11.2023, 11:22

Unnar Ari í KFK (Staðfest)

Miðjumaðurinn Unnar Ari Hansson hefur fengið félagaskipti frá KFA til KFK. Unnar var fyrirliði KFA í sumar sem rétt missti af sæti í Lengjudeildinni. Hann er 25 ára og uppalinn í Fjarðabyggð/Leikni. Hann lék með Þrótti Vogum tímabilin 2021 og 2022.

FRÉTTIR20.11.2023, 22:08

Ísland fer í umspilið (Staðfest)

Íslenska karlalandsliðið mun taka þátt í umspili um sæti á Evrópumótinu í Þýskalandi, en þetta varð ljóst eftir 3-0 sigur Tékklands á Moldóvu í kvöld.

FRÉTTIR20.11.2023, 16:07

Kennie Chopart í Fram (Staðfest)

Fram heldur áfram að styrkja liðið sitt fyrir komandi átök í Bestu deildinni. Rétt í þessu var greint frá því að Kennie Chopart væri genginn í raðir félagsins. Danski hægri bakvörðurinn skrifar undir eins árs samning við félagið en hann kemur frá KR. Hann lék undir stjórn Rúnars Kristinssonar hjá KR og fylgir honum í Fram, en Rúnar tók við stjórnartaumunum þar í haust.

FRÉTTIR20.11.2023, 15:35

Edda Garðars fylgir Nik til Breiðabliks (Staðfest)

Edda Garðarsdótir var í dag tilkynnt sem nýr aðstoðarþjálfari meistaraflokks kvenna hjá Breiðabliki. Frá þessu er greint á samfélagsmiðlum Breiðabliks. Edda er fyrrum landsliðskona sem aðstoðaði Nik Chamberlain síðustu ár hjá Þrótti. Nik söðlaði um og samdi við Breiðablik í haust og Edda fylgir honum yfir í Kópavoginn.

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.