Fotbolti.net
22.11.23 - 14:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Selma Sól yfirgefur Rosenborg (Staðfest) - Tilboð frá Englandi

Selma Sól yfirgefur Rosenborg (Staðfest) - Tilboð frá Englandi
Canon

Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir

Hertz
Fjallað er um það á norska miðlunum adressa.no að Selma Sól Magnúsdóttir sé á förum frá Rosenborg.

Samningur hennar við norska félagið er að renna út og verður ekki skrifað undir nýjan samning. Þetta staðfesti hún við Fótbolta.net í dag.
Norski fjölmiðillinn segir að Selma, sem er 25 ára miðjumaður, sé með tilboð frá Englandi. Orri Rafn Sigurðarson segir þá frá því á X að áhugi sé á Selmu frá Þýskalandi.

Hún gekk í raðir Rosenborg fyrir tímabilið 2022 og var í tvö tímabil hjá félaginu. Liðið endaði í 2. sæti norsku deildarinnar í haust. Liðið endaði stigi á eftir meisturunum í Vålerenga. Liðið endaði í 3. sæti deildarinnar 2022.

Á liðnu tímabili byrjaði hún 18 af 27 leikjum liðsins og kom átta sinnum inn á af bekknum. Hún skoraði tvö mörk á tímabilinu og komu þau bæði í byrjun september.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.