Kjartan Kári gerði þriggja ára samning við FH (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - J.L.

Mynd: Fótbolti.net - J.L.
Kjartan Kári Halldórsson hefur gert þriggja ára samning við FH sem kaupir hann frá norska félaginu Haugesund. Kjartan var á láni hjá þeim allt síðasta tímabil.
Óskar Hrafn Þorvaldsson tók nýlega við þjálfun Haugesund.
Kjartan er tvítugur vængmaður sem lék 24 leiki í deild og bikar með FH á liðnu tímabili. Í þeim skoraði hann þrjú mörk og lagði upp tvö.
Kjartan var keyptur til Haugesund frá Gróttu eftir frábært tímabil 2022.

TENGT EFNI
FH að kaupa Kjartan Kára og Arnór Borg
Samkvæmt heimildum Fótbolta.net vinnur FH einnig í því að fá Arnór Borg Guðjohnsen frá Víkingi en hann lék á láni með FH seinni hluta tímabils.
FH hafnaði í fimmta sæti í Bestu deildinni og ætla Heimir Guðjónsson og lærisveinar að byggja ofan á það.