Fotbolti.net
21.11.23 - 06:00
Brynjar Ingi Erluson

Fanney Inga framlengir við Val (Staðfest)

Fanney Inga framlengir við Val (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hertz
Fanney Inga Birkisdóttir, markvörður Vals, hefur framlengt samning sinn við félagið.
Fanney er 18 ára gömul og uppalin hjá félaginu og vann sér fast sæti í byrjunarliðinu í sumar er liðið vann Íslandsmeistaratitilinn í fjórtánda sinn.

Hún á 21 leik að baki fyrir félagið í efstu deild auk þess sem hún hefur spilað 22 leiki fyrir yngri landslið Íslands.

Markvörðurinn er í föstu hlutverki hjá U19 ára landsliðinu og var þá á dögunum valin í A-landsliðshópinn fyrir leikina gegn Danmörku og Wales í Þjóðadeildinni í desember.

Fanney verður áfram hjá Val en hún framlengdi samning sinn við félagið. Lengd samningsins kemur ekki fram í tilkynningu Vals.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.