Emelía nýtti sér ákvæði og yfirgefur Kristianstad (Staðfest)

Í leik með Kristianstad.

Mynd: Kristianstad

Í leik með Kristianstad.

Mynd: Kristianstad

Kristianstad tilkynnti í dag að sex leikmenn yrðu ekki lengur hjá félaginu. Á meðal þeirra er Emelía Óskarsdóttir. Hún skrifaði undir þriggja ára samning við félagið þegar hún gekk í raðir þess en nýtti sér uppsagnarákvæði í samningnum og er því laus allra mála.
Hún var með ákvæði í samningi sínum sem fól það í sér að ef Elísabet Gunnarsdóttir myndi yfirgefa félagið þá gæti Emelía sagt upp samningi sínum við félagið. Elísabet yfirgaf félagið á dögunum eftir fimmtán ára veru.
Hún gekk í raðir félagsins fyrir tímabilið 2022 og kom við sögu í 24 leikjum í sænsku deildinni á tíma sínum hjá Kristianstad. Fyrri hluta tímabilsins 2023 lék hún á láni með Selfossi.

Emelía er sautján ára sóknarmaður sem skoraði eitt mark í deildinni fyrir Kristianstad tímabilið 2022.
Hún undirbýr sig nú fyrir umspilsleik gegn Austurríki með U20 landsliðinu. Sigurvegari þess leiks fer á HM á næsta ári. Emelía á að baki 32 leiki með yngri landsliðum Íslands.
Í tilkynningu Kristianstad kemur einnig fram að Guðrún Þorbjörg Sturlaugsdóttir - Dúna - verði ekki áfram hjá félaginu en hún var styrktarþjálfari liðsins árið 2023. Sagt er að hún sé hún á leið aftur til Íslands.

Dúna

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð