Gylfi Tryggva aðstoðar Guðna hjá HK (Staðfest)

Mynd: KSÍ

Mynd: KSÍ

Gyfli Tryggvason, sem hefur stýrt liði Árbæjar undanfarin ár, er kominn með nýtt starf. Greint var frá því á dögunum að hann yrði ekki áfram með Árbæ og í dag var tilkynnt að hann væri nýr aðstoðarþrjálfari hjá HK.
Hann mun aðstoða Guðna Þór Einarsson með þjálfun meistaraflokks kvenna. Gylfi skrifar undir tveggja ára samning við HK.

Gylfi stýrði Árbæ upp úr 4. deild sumarið 2022 og endaði með liðið í þriðja sæti 3. deildar í sumar.
Hann hefur ásamt Sverri Mar Smárasyni haldið út hlaðvarpinu Ástríðan síðustu ár.
„Gylfi hefur komið að þjálfun hjá Fylki, Stjörnunni, Árbæ og hefur starfað fyrir yngri flokka HK síðastliðið ár við góðan orðstýr," segir í tilkynningu HK.