Guðni Bergs býður sig fram til formanns KSÍ (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Guðni Bergsson, fyrrum formaður KSÍ, hefur ákveðið að bjóða sig fram sem formaður. Nýr formaður verður kjörinn á ársþingi sambandsins í febrúar næstkomandi.
Hann var formaður sambandsins á árunum 2017-2021. Hann sagði af sér sem formaður í ágúst 2021 í kjölfar frétta af meintri hylmingu sambandsins yfir kynferðisbrotum landsliðsmanna.
Sitjandi formaður, Vanda Sigurgeirsdóttir, hefur tilkynnt að hún ætli ekki að gefa kost á sér áfram.

Yfirlýsing frá Guðna:
Yfirlýsing um framboð til formanns KSÍ
Eftir fjölda áskorana og hvatningu frá góðu fólki í knattspyrnuhreyfingunni hef ég ákveðið að bjóða mig fram sem formaður KSÍ á ársþingi sambandsins sem fram fer í lok febrúar á næsta ári.
Fótboltinn hefur verið í stóru hlutverki allt mitt líf og ég brenn fyrir íþróttina. Ég vil halda áfram að leggja mitt af mörkum til þess að vinna að því að gera gott starf KSÍ og aðildarfélaganna enn betra.
Verkefnin framundan eru mörg og fjölbreytt. Í þeim verkefnunum sem öðrum skiptir máli að við vinnum öll í saman að framgangi fótboltans í landinu. Fótboltinn samanstendur af mörgum þáttum en er ein öflug heild sem stöðugt þarf að huga að.
Ég mun fara betur yfir helstu stefnumál mín og áherslur þegar nær dregur ársþingi.
Með fótboltakveðju,
Guðni Bergsson