Fotbolti.net

Leita

Leita í fréttum

Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.

Leitarhamur

Dagsetning

Ef ekkert leitarorð er slegið inn notar síðan dagsetninguna sem einfalt fréttasafnsfilter.

Niðurstöður

Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögn og texta skilaði 25158 niðurstöðum.

Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.

Niðurstöður

FRÉTTIR03.01.2024, 06:00

Borja Lopez einnig áfram á Dalvík (Staðfest)

<p>Borja Lopez Laguna hefur framlengt samning sinn við Dalvík/Reyni og mun leika með liðinu í Lengjudeildinni næsta sumar.</p> <p>Borja er 29 ára gamall og hefur leikið með Dalvík/Reyni frá árinu 2019. Hann hefur leikið 115 leiki fyrir félagið og skorað 57 mörk.</p>

FRÉTTIR02.01.2024, 14:14

Jamaíkumennirnir farnir frá ÍBV (Staðfest)

Jamaíkumennirnir Richard King og Dwayne Atkinson hafa yfirgefið herbúðir ÍBV. Samningar þeirra við félagið eru á enda og samkvæmt vefsíðu KSÍ hafa þeir fengið félagaskipti heim til Jamaíku.

FRÉTTIR02.01.2024, 12:15

Fyrstu kaup ársins á Ítalíu - Hien til Atalanta (Staðfest)

Janúarglugginn er opinn og fyrstu leikmannakaupin hafa átt sér stað á Ítalíu. Atalanta hefur tilkynnt um kaup á sænska miðverðinum Isak Hien frá Verona. Hien er 24 ára og lék við hlið Alexander Isak, núverandi framherja Newcastle, í yngri liðum AIK á sínum tíma. Hann hefur leikið sem miðvörður síðan 2017. Hann vakti athygli með Djurgarden í heimalandinu áður en hann gekk í raðir Verona í ágúst 2022.

FRÉTTIR02.01.2024, 11:32

Stefán Þór í Val (Staðfest)

Valur tilkynnti í dag að félagið hefði náð samkomulagi við Stefán Þór Ágústsson um að ganga í raðir félagsins. Stefán er markvörður sem fæddur er árið 2001 en hefur þrátt fyrir ungan aldur leikið 129 leiki fyrir meistaraflokk Selfoss.

FRÉTTIR02.01.2024, 10:39

Rooney rekinn frá Birmingham - Liðið í frjálsu falli undir hans stjórn

Stuttri stjóratíð Wayne Rooney hjá Birmingham er lokið. Enskir fjölmiðlar segja að búið sé að reka þennan fyrrum leikmann Manchester United og Englands. Stuðningsmenn Birmingham snérust gegn Rooney eftir 3-0 tap gegn Leeds í gær en liðið hefur aðeins unnið tvo af fimmtán leikjum síðan hann tók við af John Eustace í byrjun október.

FRÉTTIR01.01.2024, 12:07

Man Utd lánar Donny van de Beek til Frankfurt (Staðfest)

Donny van De Beek, leikmaður Manchester United, er genginn í raðir Eintracht Frankfurt á láni út tímabilið. Þýska félagið fær svo að velja hvort það nýti sér kauprétt á honum upp á 11 milljónir punda auk 3 milljóna til viðbótar ef skilyrðum er mætt.

FRÉTTIR31.12.2023, 16:47

Oliver Stefáns í ÍA (Staðfest)

<p>Oliver Stefánsson er mættur aftur í uppeldisfélag sitt, ÍA, en þetta staðfesti félagið rétt í þessu.</p>

FRÉTTIR31.12.2023, 13:20

<b>100 mest lesnu fótboltafréttir ársins 2023</b>

Fóboltaárinu 2023 er að ljúka og því er kominn tími á að renna yfir mest lesnu fréttir ársins á Fótbolta.net. Topp 100 listinn er fjölbreyttur en þar má finna fréttir úr hinum ýmsu áttum fótboltans, innanlands sem utan. Fótbolti.net þakkar fyrir árið sem er að líða!

FRÉTTIR30.12.2023, 21:30

Eric Bailly aftur í Villarreal (Staðfest)

Miðvörðurinn Eric Bailly er aftur genginn í raðir spænska úrvalsdeildarfélagsins Villarreal. Hann kemur þangað á frjálsri sölu eftir að hann yfirgaf Besiktas í Tyrklandi.

FRÉTTIR29.12.2023, 16:13

Eric Bailly riftir samningi sínum (Staðfest)

Eric Bailly hefur fengið samningi sínum við tyrkneska félagið Besiktas rift. Bailly samdi við félagið í haust og lauk þar með sjö ára dvöl hans hjá Manchester United. Bailly er 29 ára miðvörður og er hann landsliðsmaður Fílabeinsstrandarinnar.

FRÉTTIR29.12.2023, 16:00

Andreas Alm ráðinn þjálfari Norrköping (Staðfest)

Norrköping tilkynnti í dag að sænski þjálfarinn Andreas Alm væri tekinn við sem þjálfari liðsins. Alm skrifar undir samning 2026. Arnar Gunnlaugsson var á tímapunkti fyrsti kostur félagsins, sænska félagið bauð í Arnar en Víkingur hafnaði tilboðinu og ekkert varð úr því að Arnar færi til Svíþjóðar.

FRÉTTIR29.12.2023, 13:13

Ancelotti framlengir við Real Madrid (Staðfest)

Real Madrid hefur staðfest framlengingu á samningi Carlo Ancelotti til sumarsins 2026. Samningur hans átti að renna út næsta sumar en hann hefur nú gert samkomulag um að halda áfram í starfi.

FRÉTTIR29.12.2023, 12:30

Bryndís Halla aftur í FH (Staðfest)

FH hefur fengið unglingalandsliðskonuna Bryndísi Höllu Gunnarsdóttur aftur til baka eftir eins og hálfs árs dvöl í Kópavoginum. Bryndís er fædd árið 2007 og er uppalin hjá FH. Hún skipti yfir til Augnabliks um mitt sumar 2022 og lék svo á láni með liðinu frá Breiðabliki á liðinni leiktíð. Bryndís er systir Harðar Inga sem leikur með karlaliði FH.

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.