Andreas Alm ráðinn þjálfari Norrköping (Staðfest)

Mynd: Norrköping

Mynd: Norrköping
Norrköping tilkynnti í dag að sænski þjálfarinn Andreas Alm væri tekinn við sem þjálfari liðsins. Alm skrifar undir samning 2026.
Arnar Gunnlaugsson var á tímapunkti fyrsti kostur félagsins, sænska félagið bauð í Arnar en Víkingur hafnaði tilboðinu og ekkert varð úr því að Arnar færi til Svíþjóðar.

Jóhannes Karl Guðjónsson var einnig orðaður við félagið, fór á fund hjá félaginu en óvíst er hversu nálægt því hann var að taka við.
Alm er fimmtugur og var síðast þjálfari OB í Danmörku. Hann var látinn fara þaðan í síðasta mánuði. Hann þjálfaði áður Eskilstuna, AIK, Vejle og BK Häcken. Hann lék sem framherji á sínum ferli og var hann leikmaður Norrköping tímabilin 2004 og 2005.
Hjá Norrköpin eru þeir Ísak Andri Sigurgeirsson og Arnór Ingvi Traustason. Ari Freyr Skúlason er 'transition' þjálfari hjá félaginu og Andri Lucas Guðjohnsen er samningsbundinn félaginu en er á láni hjá Lyngby.