Sarr skrifaði undir sex ára samning við Tottenham (Staðfest)


Mynd: Getty Images


Mynd: Getty Images
Pape Matar Sarr hefur skrifað undir nýjan samning við Tottenham sem gildir til ársins 2030.
Sarr er 21 árs gamall senegalskur miðjumaður sem gekk til liðs við Tottenham frá Metz í Frakklandi árið 2021 en var lánaður strax aftur til franska liðsins.
Hann spilaði 11 leiki fyrir Tottenham á síðustu leiktíð en hefur þegar komið við sögu í 18 leikjum á yfirstandandi tímabili. Hann skoraði sitt fyrsta mark fyrir félagið í 2-0 sigri á Man Utd í ágúst og bætti öðru marki sínu við í sigri á Bournemouth á gamlársdag.
„Ég er stoltur að vera hluti af Tottenham fjölskyldunni," skrifaði Sarr á X eftir undirskriftina.
????????'???????? ???????????????????????????????????? ???????????? ???????????????????? ! ????????
— Pape Matar Sarr (@papematarsarr15) January 2, 2024
Very proud to be part of the ???????????????????? family. #COYS???????? https://t.co/BGPFSdwFJO






