Stefán Þór í Val (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Mynd: Valur

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Valur tilkynnti í dag að félagið hefði náð samkomulagi við Stefán Þór Ágústsson um að ganga í raðir félagsins. Stefán er markvörður sem fæddur er árið 2001 en hefur þrátt fyrir ungan aldur leikið 129 leiki fyrir meistaraflokk Selfoss.
„Ég sá mjög gott tækifærið til að halda áfram að bæta mig sem leikmann með að fara í Val. Aðstæður og þjálfarateymi er upp á 10 og er ég virkilega spenntur að byrja að vinna með þeim. Með leikjum öðlast maður reynslu og sú reynsla mun nýtast mér mjög vel. Það vilja allir spila leiki og fá sem flestar mínútur í lappirnar. Ég er virkilega þakklátur að vera kominn með svona marga leiki," sagði Stefán.
Hjá Val mun Stefán veita Frederik Schram samkeppni um markvarðarstöðuna.
„Auðvitað, öll samkeppni er góð fyrir mann og hvað þá þegar maður er að keppast um stöðu við einn þann besta á landinu. Ég mun gera allt til þess að bæta mig og Fredrik sem leikmenn. Ég er spenntur fyrir komandi leiktíð og fá að vinna með honum.“
Arnar Grétarsson, þjálfari Vals, tjáði sig einnig um komu Stefáns á Hlíðarenda.
„Það er frábært að fá Stefán Þór til okkar sem er þrátt fyrir ungan aldur hörku markvörður með mikla reynslu. Hann hefur verið að æfa með okkur síðustu vikur og komið virkilega vel út á æfingum. Frábær viðbót við okkar flotta hóp."
Komnir
Bjarni Guðjón Brynjólfsson frá Þór
Gísli Laxdal Unnarsson frá ÍA
Stefán Þór Ágústsson frá Selfossi
Þorsteinn Aron Antonsson frá Selfossi
Arnór Ingi Kristinsson frá Leikni (var á láni)
Ólafur Flóki Stephensen frá Grindavík (var á láni)
Farnir
Andri Rúnar Bjarnason í Vestra
Haukur Páll Sigurðsson orðinn aðstoðarþjálfari
Hlynur Freyr Karlsson til Haugesund
Sveinn Sigurður Jóhannesson
Guy Smit (var á láni hjá ÍBV)
Samningslausir
Birkir Már Sævarsson