Fotbolti.net
02.01.24 - 12:15
Elvar Geir Magnússon

Fyrstu kaup ársins á Ítalíu - Hien til Atalanta (Staðfest)

Isak Hien (til vinstri).

Isak Hien (til vinstri).

Canon

Mynd: EPA

Janúarglugginn er opinn og fyrstu leikmannakaupin hafa átt sér stað á Ítalíu. Atalanta hefur tilkynnt um kaup á sænska miðverðinum Isak Hien frá Verona.

Hien er 24 ára og lék við hlið Alexander Isak, núverandi framherja Newcastle, í yngri liðum AIK á sínum tíma. Hann hefur leikið sem miðvörður síðan 2017.

Hann vakti athygli með Djurgarden í heimalandinu áður en hann gekk í raðir Verona í ágúst 2022.
Hien hefur leikið átta landsleiki fyrir Svíþjóð en foreldrar hans eru frá Gana og Búrkína Fasó.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.