Fotbolti.net
29.12.23 - 12:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Bryndís Halla aftur í FH (Staðfest)

Bryndís Halla aftur í FH (Staðfest)
Canon

Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir

Hertz
FH hefur fengið unglingalandsliðskonuna Bryndísi Höllu Gunnarsdóttur aftur til baka eftir eins og hálfs árs dvöl í Kópavoginum.

Bryndís er fædd árið 2007 og er uppalin hjá FH. Hún skipti yfir til Augnabliks um mitt sumar 2022 og lék svo á láni með liðinu frá Breiðabliki á liðinni leiktíð. Bryndís er systir Harðar Inga sem leikur með karlaliði FH.
Hún á alls að baki 23 leiki í Lengjudeildinni og tvo í Mjólkurbikarnum. Þá á hún að baki 21 leik með yngri landsliðunum.

FH kom mörgum á óvart í sumar og komst í efra umspilið í Bestu deildinni sem nýliði. Liðið var í 5. sæti þegar úrslitakeppnin hófst og endaði í 6. sæti.

Miðjumaðurinn er ekki eini leikmaðurinn sem FH hefur fengið frá Breiðabliki í vetur því Margrét Brynja Kristinsdóttir gekk alfarið í raðir FH eftir að hafa leikið á láni með FH í sumar og sömu sögu er að segja af Birnu Kristínu Björnsdóttur.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.