Fotbolti.net
01.01.24 - 15:00
Hafliði Breiðfjörð

Liverpool fær Owen aftur í ljósi vandræða (Staðfest)

Owen Beck með Wales gegn Danmörku í haust. Hann er kominn aftur til Liverpool frá Dundee.

Owen Beck með Wales gegn Danmörku í haust. Hann er kominn aftur til Liverpool frá Dundee.

Canon

Mynd: Getty Images

Skoska félagið Dundee tilkynnti í dag að Liverpool hafi kallað Owen Beck til baka úr láni.
Owen Beck er vinstri bakvörður en báðir kostir Liverpool í þá stöðu, Andy Robertson og Kostas Tsimikas eru frá keppni vegna meiðsla og Joe Gomez hefur þurft að leysa þá af.

Owen kom til Dundee í sumar og þykir hafa staðið sig frábærlega í skoska boltanum. Reyndar svo vel að hann var valinn í welska landsliðið í fyrsta sinn.

Félagaskiptaglugginn í Evrópu opnaði í dag og Liverpool ákvað að nýta sér það með því að kalla Owen til baka. Hann er annar leikmaðurinn sem félagið kallar til baka úr láni því Fabio Carvalho kom frá RB Leipzig í gær

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.