Samdi við Stjörnuna í haust en leggur nú skóna á hilluna (Staðfest)


Mynd: Stjarnan


Mynd: Stjarnan
Danski varnarmaðurinn Kristian Riis hefur ákveðið að leggja skóna á hilluna aðeins 26 ára að aldri vegna meiðsla.

TENGT EFNI
„Eini sem við erum nokkuð vissir um að muni ekki spila á tímabilinu"
Hann samdi við Stjörnuna í sumarglugganum eftir að samningur hans við Lyngby rann út. Hann spilaði átta leiki með Lyngby áður en hann meiddist illa og gat ekkert spilað með Stjörnunni.

TENGT EFNI
TENGT EFNI
„Karakter sem getur hjálpað okkur að komast lengra sem lið"
Hann er uppalinn hjá Midtjylland og lék 23 leiki í dönsku úrvalsdeildinni.
„Meiðsli hefur tekið stóran part af ferlinum. Það hefur verið mikil áskorun en á sama tíma mikill lærdómur. Þau hafa kennt mér að ef viljinn er fyrir hendi er allt hægt. Ég er mjög þakklátur öllum þeim sem höfðu trú á mér," skrifar Kristian Riis á Instagram.
Heimild: Tipsbladet






