Borja Lopez einnig áfram á Dalvík (Staðfest)


Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson


Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Borja Lopez Laguna hefur framlengt samning sinn við Dalvík/Reyni og mun leika með liðinu í Lengjudeildinni næsta sumar.
Borja er 29 ára gamall og hefur leikið með Dalvík/Reyni frá árinu 2019. Hann hefur leikið 115 leiki fyrir félagið og skorað 57 mörk.

TENGT EFNI
Þröstur Mikael áfram á Dalvík (Staðfest)
Hann lék 19 leiki fyrir liðið þegar það tryggði sér sigur í 2. deild á síðustu leiktíð og skoraði 10 mörk.
Hann var í liði ársins hjá hlaðvarpsþættinum Ástríðunni.
Dalvík/Reynir hefur verið að endursemja við leikmenn fyrir átökin í Lengjudeildinni en Þröstur Mikael Jónasson skrifaði einnig undir nýjan samning á dögunum.






