Fotbolti.net
02.01.24 - 13:50
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Birta Guðlaugs í Víking (Staðfest)

Birta Guðlaugsdóttir.

Birta Guðlaugsdóttir.

Canon

Mynd: Víkingur

Hertz
Markvörðurinn Birta Guðlaugsdóttir hefur skrifað undir tveggja ára samning við knattspyrnudeild Víkings.
Birta er 22 ára markmaður sem kemur til liðsins frá Val en Birta stundar einnig nám í Bandaríkjunum og spilar þar í háskólaboltanum.

Þrátt fyrir ungan aldur á Birta 96 meistaraflokksleiki, þar af 26 í efstu deild. Þá hefur Birta spilað 20 leiki fyrir yngri landslið Íslands.

„Það er mikið fagnarefni fyrir okkur Víkinga að fá Birtu í okkar raðir og mun hún styrkja liðið fyrir komandi átök í Bestu deildinni," segir í tilkynningu Víkings.

Unglingalandsliðsmarkvörðurinn Katla Sveinbjörnsdóttir varði mark Víkings síðasta sumar en Birta fer í samkeppni við hana.

Víkingur fór með sigur af hólmi í Lengjudeildinni síðasta sumar og spilar í deild þeirra bestu næsta sumar.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.