Fotbolti.net
30.12.23 - 19:36
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Hugo Lloris til LAFC (Staðfest) - Tilfinningarík kveðja

Hugo Lloris.

Hugo Lloris.

Canon

Mynd: EPA

Franski markvörðurinn Hugo Lloris hefur yfirgefið herbúðir Tottenham og samið við Los Angeles FC í Bandaríkjunum.
Þessi 37 ára gamli markvörður hefur fallið niður goggunarröðina hjá Tottenham eftir að Guilermo Vicario gekk til liðs við félagið. Lloris hefur ekkert komið við sögu á þessu tímabili.

Lloris var fyrirliði Tottenham en Ange Postecoglou tók bandið af honum í sumar og gerði Heung-Min Son að nýjum fyrirliða.

Lloris lék 477 leiki fyrir félagið en hann gekk til liðs við Tottenham árið 2012 frá Lyon. Það má með sanni segja að hann sé goðsögn hjá Lundúnafélaginu en hann sendi stuðningsmönnum tilfinningaríku kveðju eftir að skiptin voru tilkynnt áðan.

Þessa kveðju má sjá hér fyrir neðan.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.