Eric Bailly riftir samningi sínum (Staðfest)

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Eric Bailly hefur fengið samningi sínum við tyrkneska félagið Besiktas rift. Bailly samdi við félagið í haust og lauk þar með sjö ára dvöl hans hjá Manchester United.
Bailly er 29 ára miðvörður og er hann landsliðsmaður Fílabeinsstrandarinnar.

Hann kom við sögu í átta leikjum með Besiktas á tímabilinu en var í nóvember tekinn úr leikmannahópnum. Hann var einn af fimm leikmönnum sem voru teknir úr aðalliðshópnum.
Besiktas sagði þá að ákvörðunin hafi verið tekin vegna lélegrar frammistöðu og að liðið væri illa samstillt.
Bailly hefur á ferlinum leikið með Espanyol, Villarreal, Manchester United, Marseille og Besiktas. Hann lék alls 113 leiki fyrir United í öllum keppnum.