Fotbolti.net
30.12.23 - 06:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Tim Ream skrifar undir nýjan samning við Fulham (Staðfest)

Tim Ream skrifar undir nýjan samning við Fulham (Staðfest)
Canon

Mynd: EPA

Tim Ream hefur skrifað undir nýjan samning við Fulham sem gildir til ársins 2025.

Árið 2025 verða tíu ár síðan Ream gekk til liðs við Fulham frá Bolton. Þessi 35 ára gamli bandaríski varnarmaður hefur leikið 306 leiki fyrir félagið.

,,Það er gott að þetta sé í höfn. Maður hefur unnið hart að sér að vera hjá liði í svona langan tíma. Það er ekki á hverjum degi að maður geti sagt að maður gæti verið hjá einhverju liði í tíu ár," sagði Ream við undirskriftina.

„Það fyllir mig stolti að halda áfram í þessum rússíbana sem fótbolti er."

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.