Eric Bailly aftur í Villarreal (Staðfest)

Bailly er kominn aftur í gult.

Mynd: Villarreal

Bailly er kominn aftur í gult.

Mynd: Villarreal
Miðvörðurinn Eric Bailly er aftur genginn í raðir spænska úrvalsdeildarfélagsins Villarreal. Hann kemur þangað á frjálsri sölu eftir að hann yfirgaf Besiktas í Tyrklandi.

TENGT EFNI
Eric Bailly riftir samningi sínum (Staðfest)
Fílabeinsstrendingurinn skrifar undir 18 mánaða samning við Villarreal.
Besiktas rifti samningi Bailly í vikunni en félagið greindi frá því að það væri vegna lélegrar frammistöðu og út af því að liðið væri illa samstillt.
Bailly er 29 ára gamall miðvörður en hann gerði eins ár samning við tyrkneska félagið í sumar en spilaði aðeins fimm leiki.
Bailly hefur spilað með Espanyol, Villarreal, Manchester United og Marseille á ferlinum.
Bailly spilaði 47 leiki yfir tvö tímabil með Villarreal áður en hann gekk til liðs við Manchester United fyrir 30 milljónir evra árið 2016.