Fotbolti.net
29.12.23 - 13:13
Elvar Geir Magnússon
Jói útherji

Ancelotti framlengir við Real Madrid (Staðfest)

Ancelotti framlengir við Real Madrid (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Real Madrid hefur staðfest framlengingu á samningi Carlo Ancelotti til sumarsins 2026.

Samningur hans átti að renna út næsta sumar en hann hefur nú gert samkomulag um að halda áfram í starfi.
Það var í deiglunni að Ancelotti yrði landsliðsþjálfari Brasilíu á næsta ári en nú verður það að teljast afskaplega ólíklegt.

Ancelotti er 64 ára og hefur unnið tíu titla sem stjóri Real Madrid, þar af tvo Meistaradeildartitla.

Ancelotti er eini stjórinn sem hefur fjórum sinnum unnið Meistaradeildina og eini sem hefur unnið landsmeistaratitilinn í öllum fimm stærstu deildum Evrópu; Ítalíu, Spáni, Englandi, Þýskalandi og Frakklandi.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.