Fotbolti.net
31.12.23 - 16:47
Aksentije Milisic

Oliver Stefáns í ÍA (Staðfest)

Oliver Stefáns í ÍA (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Oliver Stefánsson er mættur aftur í uppeldisfélag sitt, ÍA, en þetta staðfesti félagið rétt í þessu.

Hinn 21 árs gamli Oliver samdi út árið 2025 en hann kemur til liðsins frá Breiðablik. Leikmaðurinn spilaði 20 leiki með ÍA sumarið 2022 en þá var hann á láni frá sænska félaginu Norrköping.

Hann gekk svo í raðir Breiðabliks frá Norrköping í febrúar mánuði á þessu ári en hann fékk fá tækifæri í grænu treyjunni. Hann spilaði einungis sex leiki í Bestu deildinni og fjóra í Mjólkurbikarnum.

„ÍA og Breiðablik hafa komist að samkomulagi um vistaskipti fyrir Oliver Stefánsson, kemur hann heim á Skagann til að styrkja liðið fyrir komandi átök.
Oliver (2002) hefur samið við ÍA út tímabilið 2025, Oliver er Skagamönnum vel kunnur, er alinn upp hjá félaginu og hefur sýnt mátt sinn og megin. Hann fór ungur í atvinnumennsku, 16 ára, til Norrköping en hefur leikið hér heima í Bestu deildinni undanfarin tvö ár, fyrst með ÍA og síðasta tímabil með Breiðabliki. Við gerum miklar væntingar til þessa efnilega leikmanns og hlökkum til að sjá hann kljást í Bestu deildinni í sumar," segir á m.a. í tilkynningunni frá ÍA.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.