FRÉTTIR26.10.2023, 13:00
Bristol Rovers í ensku C-deildinni hefur tekið ákvörðun um að reka stjórann Joey Barton úr starfi.
Frá þessu var fyrst sagt frá hjá <i>Talksport</I> en félagið tilkynnti það svo tíðindin formlega stuttu síðar.
FRÉTTIR26.10.2023, 11:03
Búið er að staðfesta það að ítalski miðjumaðurinn Sandro Tonali sé farinn í tíu mánaða bann frá fótbolta þar sem hann braut veðmálareglur.
Tonali gengst við brotum sínum og samdi utan dómstóla.
FRÉTTIR25.10.2023, 23:05
Framarar staðfestu á Instagram í kvöld að Þórir Guðjónsson sé hættur hjá félaginu.
FRÉTTIR25.10.2023, 11:54
Rúnar Kristinsson var staðfestur sem nýr þjálfari Fram á fréttamannafundi sem var að hefjast í Íþróttamiðstöð Fram í Úlfarsárdalnum.
Samningurinn er til þriggja ára.
Framarar voru í fallbaráttu í Bestu deildinni í sumar en náðu að bjarga sæti sínu í lokaumferðinni þar sem önnur úrslit urðu þeim hagstæð.
FRÉTTIR25.10.2023, 08:00
Spænski miðjumaðurinn Ion Perello verður ekki áfram í herbúðum Fram. Hann var að renna út á samningi hjá félaginu og mun spila annars staðar á næsta tímabili.
Ion gekk í raðir Fram frá Þór í sumar og samdi út tímabilið. Hann er 25 ára gamall og kom við sögu í fjórum leikjum hjá Fram.
FRÉTTIR25.10.2023, 06:00
Króatíski þjálfarinn Marino Pusic er hættur sem aðstoðarmaður Arne Slot hjá Feyenoord og hefur nú tekið við úkraínska liðinu Shakhtar Donetsk, en þetta kemur fram í tilkynningu frá Feyenoord.
FRÉTTIR24.10.2023, 19:34
Portúgalski stjórinn Marco Silva hefur skrifað undir nýjan þriggja ára samning við enska úrvalsdeildarfélagið Fulham.
FRÉTTIR24.10.2023, 17:05
Ólafur Kristjánsson hefur verið ráðinn þjálfari kvennaliðs Þróttara. Hann skrifaði undir þriggja ára samning við félagið í dag.
Hann tekur við starfinu af Nik Chamberlain sem var á dögunum ráðinn sem nýr þjálfari Breiðabliks.
<b>Uppfært 17:05:</b> Áður var sagt frá yfirvofandi ráðningu Þróttar og staðfesti félagið í kjölfarið tíðindin.
FRÉTTIR24.10.2023, 12:00
Sandgerðingar tilkynntu í dag að þeir Kristófer Páll Viðarsson og Benedikt Jónsson verða áfram hjá liðinu. Þeir hafa báðir skrifað undir samning sem gilda út tímabilið 2025.
Benedikt er fæddur árið 1997. <i>„Varnarjaxlinn Benni hefur leikið með félaginu frá árinu 2020 og á að baki 87 leiki fyrir Reyni. Hann bar fyrirliðabandið í sumar og leiddi liðið glæsilega til sigurs í 3. deild karla,"</I> segir í tilkynningu Reynis.
FRÉTTIR24.10.2023, 08:00
Fram hefur gengið frá samningum við Frey Sigurðsson, en hann kemur til félagsins frá Sindra.
FRÉTTIR24.10.2023, 07:30
Nacho Gil og Vladimir Tufegdzic hafa báðir framlengt samninga sína við Vestra og spila því með liðinu í Bestu deildinni næsta sumar, en þetta kemur fram í tilkynningu félagsins.
FRÉTTIR23.10.2023, 16:52
Stuðningsmenn Ajax hafa tekið þeim fregnum sem voru að berast fagnandi en búið er að reka þjálfarann Maurice Steijn úr starfi.
FRÉTTIR23.10.2023, 14:03
Selfoss hefur tilkynnt að félagið hafi komist að samkomulagi við Fylki um sölu á Guðmundi Tyrfingssyni. Hann semur við Árbæjarliðið út tímabilið 2026.
FRÉTTIR23.10.2023, 11:33
Færeyski sóknarmaðurinn Martin Klein hefur skrifað undir samning við Lengjudeildarfélag Njarðvíkur sem gildir til næstu tveggja ára.
FRÉTTIR23.10.2023, 09:00
Ítalska B-deildarfélagið Sampdoria er búið að festa kaup á kantmanninum efnilega Estanislau Pedrola frá Barcelona, sem félagið fékk á láni með kaupskyldu sem virkjast eftir tíu spilaða leiki.
FRÉTTIR22.10.2023, 20:17
Miðjumaðurinn Kolbeinn Þórðarson skipti frá Lommel SK yfir til Göteborg í ágúst og fór beint inn í byrjunarliðið hjá sænska félaginu. Hann hefur staðið sig gríðarlega vel og er strax búinn að gera nýjan samning við félagið.
FRÉTTIR22.10.2023, 12:24
<p>Bjarni Jóhannsson hefur verið ráðinn þjálfari Selfoss sem leikur í 2. deild næsta sumar eftir að hafa fallið úr Lengjudeildinni í sumar. Hann gerir tveggja ára samning við félagið.</p><p>Hann tekur við af Dean Martin sem lét af störfum í síðasta mánuði.</p>
FRÉTTIR21.10.2023, 07:00
FH er búið að klófesta serbneska varnarmanninn Dusan Brkovic sem kemur til félagsins úr röðum KA.
FRÉTTIR20.10.2023, 22:11
Ægir í Þorlákhsöfn er búið að staðfesta nýjan samning við lykilmann sinn og fyrirliða Stefan Dabetic, sem gildir næstu tvö keppnistímabilin.
FRÉTTIR20.10.2023, 19:06
Andri Rúnar Bjarnason er genginn til liðs við Vestra, sem er nýliði í Bestu deildinni. Þetta staðfestu Ísfirðingar með færslu á samfélagsmiðlum fyrir skömmu.