Fotbolti.net
26.10.23 - 13:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Joey Barton rekinn frá Bristol Rovers (Staðfest)

Rekinn.

Rekinn.

Canon

Mynd: Getty Images

Bristol Rovers í ensku C-deildinni hefur tekið ákvörðun um að reka stjórann Joey Barton úr starfi.

Frá þessu var fyrst sagt frá hjá Talksport en félagið tilkynnti það svo tíðindin formlega stuttu síðar.
„Við öll hjá félaginu viljum þakka Joey fyrir hans framlag og óskum honum alls hins besta í framtíðinni," segir í yfirlýsingu Bristol Rovers.

Barton hafði stýrt Bristol Rovers frá því í febrúar 2021. Hann féll með liðinu niður í D-deild en kom þeim beint upp aftur.

Úrslitin í byrjun þessa tímabils hafa ekki verið nægilega góð og því hefur Barton verið vikið úr starfi.

Barton er svo sannarlega litríkur persónuleiki en á leikmannaferlinum spilaði hann fyrir Manchester City, Newcastle United, QPR, Burnley og Rangers.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.