Gummi Tyrfings í Fylki (Staðfest)

Guðmundur er tvítugur sóknarleikmaður og hefur leikið 26 leiki fyrir yngri landslið Íslands.

Mynd: Fótbolti.net - Hulda Margrét

Selfoss hefur tilkynnt að félagið hafi komist að samkomulagi við Fylki um sölu á Guðmundi Tyrfingssyni. Hann semur við Árbæjarliðið út tímabilið 2026.
„Eins og eflaust allt okkar stuðningsfólk veit er Guðmundur Selfyssingur í húð og hár. Hann æfði og spilaði með Selfoss upp alla yngri flokka," segir í tilkynningu Selfyssinga.
„Hann steig sín fyrstu skref í meistaraflokki með Selfoss sumarið 2018 í Inkasso-deildinni. Hann var síðan komin í lykilhlutverk í liðinu ári seinna, aðeins 17 ára gamall þegar liðið lék í 2. deild. Árið 2020 gekk hann í raðir ÍA en kom síðan aftur „heim” um mitt tímabil í fyrra."
Guðmundur skoraði ellefu mörk á tímabilinu í deild og bikar og var fyrirliði Selfoss en liðið féll úr Lengjudeildinni.
„Mig langar að koma á framfæri þökkum til liðsfélaga minna, fólki í kringum félagið og stuðningsmönnum fyrir tímann minn síðustu ár. Ég er viss um að Selfossi muni ganga vel á næstu árum enda frábærir leikmenn í liðinu ásamt mörgum efnilegum leikmönnum að koma upp. Ég hlakka til að fylgjast með Selfossi sem stuðningsmaður. Takk fyrir mig!" segir Guðmundur í tulkynningunni.