Nacho og Túfa framlengja við Vestra (Staðfest)

Nacho Gil gerði eins árs samning

Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir

Nacho Gil gerði eins árs samning

Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir
Nacho Gil og Vladimir Tufegdzic hafa báðir framlengt samninga sína við Vestra og spila því með liðinu í Bestu deildinni næsta sumar, en þetta kemur fram í tilkynningu félagsins.
Báðir leikmennirnir gengu í raðir Vestra fyrir tímabilið 2020, en Nacho kom frá Þór á meðan Tufegdzic kom frá Grindavík.
Tufegdzic er fæddur 1991 og hefur áður spilað fyrir Grindavík, KA og Víking R. hér á landi.
Hann hefur gert 22 deildarmörk í 67 leikjum með Vestra, en í sumar gerði hann 9 mörk er Vestri komst upp í Bestu deildina.
Tufegdzic skrifaði undir tveggja ára samning við Vestra í gær og þá gerði Nacho Gil eins árs samning.
Nacho er fæddur 1993 og hefur skorað 17 mörk í 74 deildarleikjum með Vestra frá því hann kom frá Þór.

Vladimir Tufegdzic gerði tveggja ára samning

Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir