Fotbolti.net
25.10.23 - 06:00
Brynjar Ingi Erluson

Marino Pusic tekur við Shakhtar (Staðfest)

Marino Pusic tekur við Shakhtar (Staðfest)
Canon

Mynd: Shakhtar

Króatíski þjálfarinn Marino Pusic er hættur sem aðstoðarmaður Arne Slot hjá Feyenoord og hefur nú tekið við úkraínska liðinu Shakhtar Donetsk, en þetta kemur fram í tilkynningu frá Feyenoord.
Patrick van Leeuwen var látinn taka poka sinn hjá Shakhtar á dögunum eftir aðeins þrjá mánuði í starfi, en Darijo Srna, framkvæmdastjóri Shakhtar, stýrði liðinu til bráðabirgða um helgina er það vann öruggan 3-0 sigur.

Srna var ekki lengi að finna mann til að taka við stöðunni en hann hefur ráðið Pusic til starfa.

Pusic var aðstoðarmaður Arne Slot hjá Feyenoord, en áður var hann aðstoðarþjálfari hjá Twente, AZ Alkmaar, NAC Breda og Inter Baku.

Samningur Pusic er til næstu þriggja ára, en hann mun hins vegar ekki stýra liðinu gegn Barcelona í kvöld. Srna verður á hliðarlínunni í síðasta sinn er liðin eigast við í Meistaradeildinni.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.