Sampdoria kaupir Pedrola frá Barcelona (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Ítalska B-deildarfélagið Sampdoria er búið að festa kaup á kantmanninum efnilega Estanislau Pedrola frá Barcelona, sem félagið fékk á láni með kaupskyldu sem virkjast eftir tíu spilaða leiki.
Pedrola spilaði sinn tíunda leik í 2-0 sigri gegn Cosenza um helgina, í leik þar sem Fabio Borini skoraði bæði mörkin í öðrum sigri deildartímabilsins.
Þar með virkjaðist kaupskyldan og fá Börsungar 3 milljónir evra í kassann fyrir söluna. Þá heldur Barca 50% af endursöluréttinum og er einnig með endurkaupsákvæði sem hljóðar upp á 7 milljónir evra.
Pedrola er tvítugur og er búinn að skora þrjú mörk hjá Sampdoria. Hann hefur komið við sögu í einum leik með aðalliði Barcelona, tímabilið 2021-22.
Pedrola gerir fjögurra ára samning við Samp og vonast til að hjálpa félaginu að komast aftur upp í deild þeirra bestu sem fyrst.